Íslenskur mastersnemi í Gautaborg

Tuesday, January 13, 2009

up and running

ég er kominn aftur til Gautaborgar. Var frekar þungt yfir daginn sem ég kom, ískalt og hellirigning.

Nú tekur bara alvara lífsins við. Ég er núna að gera mastersverkefnið mitt. Þetta virðist vera rosalega stór biti að kyngja. Ég verð bara að koma reglu á hlutina, er alltaf búinn að sofa svo lengi frameftir. Mér var úthlutað góðu skrifborði á skrifstofu sem aðrir Mastersnemar eru að vinna sín verkefni líka. Það eru skilveggir allt í kring um mig þannig að ég er ekkert mikið var við þá. Þetta leggst samt ágætlega í mig. Ég fæ líka laun fyrir að skrifa þetta, alveg 25.000 SKR sem er alveg töluverður peningur.

æji ég er eitthvað svo andlaus, ætla í Xbox 360 :)