Strobe lights and blown speakers

Íslenskur mastersnemi í Gautaborg

Sunday, September 20, 2009

smá update

jæja, langt síðan ég hef skrifað hérna.


ég setti bloggið mitt á pásu núna í síðasta vetur. Ég varð svo miður mín þegar ég sá að ég gæti ekki flutt heim aftur til Íslands og ég vissi ekkert hvað yrði um mig að ég hafði enga löngun að skrifa hugleiðinar mínar niður.

Ég kláraði M.Sc. ritgerðina mína í vor og er kominn með M.Sc. gráðuna mína. Mér finnst mjög skrýtið að hugsa til þess að skólagöngu minni sé lokið, ég hef alltaf verið í skóla allt mitt líf. Mér fannst samt mjög gaman að vera í skóla, en engu að síður fann ég að ég var orðinn pínu þreyttur á því og langaði aðeins að breyta til.

Ég sótti um nokkrar vinnur í maí í Noregi og ég fékk strax hringingu daginn eftir frá einu fyrirtæki sem var mjög áhugasamt að tala meira við mig. Ég fór í tvo símaviðtöl og eitt alvöru viðtal og réðu mig í kjölfarið. Fyrirtækið heitir Reinertsen og þetta er mjög fræg verkfræðistofa hérna í Skandenavíu og er staðsett í Þrándheimi, Bergen, Oslo og Gautaborg. Ég fékk stöðu hérna í Bergen. Ég vinn á röradeildinni og vinn við að hanna olíu og gaspípur og uppistöðurnar sem halda þeim uppi. Reinertsen hérna í Bergen er bara með einn viðskiptavin og það er Statoil Hydro. Við sjáum um 3 olíuborpalla fyrir utan Bergen og það er eina sem við gerum núna. Reinertsen í Bergen er samt að stækka við sig og við vonum að við getum fengið fleiri verkefni í náinni framtíð, því það er kannski ekkert sniðugt að vera bara með einn viðskiptavin, því ef hann fer á hausinn eða segir upp samningnum við okkur þá erum við screwed. Ég fékk mjög fína skrifstofu. Við erum 4 sem deilum henni saman, einn Íslendingur (ég ) , einn Svíi, einn Indverji og einn Norðmaður. Það er alltaf verið að gera grín af okkur hvað þetta er international skrifstofa :), en okkur er alveg sama.

Ég fann mér herbergi til að búa í hérna í Bergen. Við erum 4 sem búum hérna í íbúðinni, 2 strákar og tvær stelpur. Stelpurnar eru í skóla en við strákarnir erum báðir með vinnu, hann er í sjóhernum en vinnur samt 8-16 vinnu eins og ég. Þau eru öll rosalega fín og ég er feginn að hafa kynnst þeim.

Ég er búinn að vera að djamma eiginlega allt of mikið síðan ég kom hingað, ég hef bara reynt að fara eins mikið út og ég get til að hitta og kynnast fólki. Norðmenn eru rosalega vinalegir, kannski ekki alveg jafn vinalegir og Svíar en minna feimnir upp á móti. Það eru allir rosalega áhugasamir um Ísland og ég er búinn að bjóða mjög mörgum í heimsókn næsta sumar. Norðmenn og reyndar trúlega fleiri hafa mjög brenglaða ímynd á ástandinu á Íslandi, halda bara að allt sé farið, það er búið að spyrja mig 2x í vinnunni hvort ég þurfi að senda launin mín heim til að sjá fyrir fjölskyldunni. Ég svosem veit ekki hvað ég á að segja þeim, finnst mjög erfitt að leggja eitthvað mat á ástandið, t.d. hvað þetta verður mikið verra áður en þetta verður betra og hversu langan tíma þetta muni taka að ganga yfir.

Ég er samt mjög feginn að vera kominn hingað til Noregs og líkar bara rosalega vel. Ég skal lofa að blogga meira framvegis, og jafnvel skella inn myndum hérna líka :)

bæjó í bili
Jói


Tuesday, April 28, 2009

svínaflensa , ritgerð og fleira

Það er fátt talað um annað heldur en Svínaflensu í fréttunum, bæði á Íslandi og Svíþjóð, ég nenni ekki að stressa mig yfir henni samt, stress veikir ónæmiskerfið ef það er rétt þá deyja þeir fyrst(og jafnvel eingöngu) sem hafa áhyggjur af þessu :), allri alvöru fylgir eitthvað grín....

Ritgerðarvinnan gengur bara vel, ég skilaði eintaki af ritgerðinni í dag til að kennarinn geti séð uppbygginguna á henni. Lokaeintakið fær hann síðan föstudaginn 15. maí. Hann ætlar að nota helgina til að lesa hana yfir og ég fæ hana aftur á mánudaginn til að laga. Ég vona að samt að það þurfi ekki að laga hana mjög mikið. Fyrirlesturinn flyt ég síðan 4. júní og vona að ég sjá ykkur sem flest þar ;).

en ég er ekki búinn að fá svar með neina vinnu ennþá, ég samt nenni ekki (og hef ekki tíma) til að hugsa mikið um það.

Ég flutti fyrirlestur um niðurstöðurnar úr ritgerðinni minni síðasta föstudag fyrir einhverja gaura úr lestarteinabransanum, og kennurum úr skólanum mínum og kennurum úr KTH. Það gekk bara furðuvel og þau virtust ánægð. Mér fannst þetta samt frekar stressandi, sérstaklega að þau voru að nóta niður hjá sér fullt á meðan ég var kynna, fór þá að hugsa hvort það væri eitthvað vit í þessu sem ég var að gera.

En allaveganna þá er ég alveg búinn með 1/2 lokafyrirlesturinn núna :)

ég hlakka rosalega til að skila þessu en það stefnir í það að ég verði rosalega bussy þangað til, þarf að vinna öll kvöld held ég þangað til

Thursday, April 2, 2009

styttist..

4. júní er dagurinn eins og planið er núna, dagurinn sem ég skila ritgerðinni.

annars féll ég fyrir einu aprílgabbi í gær, ég trúði því að Íslandsbanki væri að gera bílana hans Jóns Ásgeirs upptæka....

bestu kveðjur

Thursday, March 26, 2009

orð skulu standa...

ætla að blogga fyrst ég lofaði því

það var ekkert svo hræðilegt að verða 25 ára. Hélt að þetta yrði meiri breyting.

En allaveganna get ég ekki hagað mér barnalega lengur, þarf að bera ábyrgð og þarf að skipta máli.


Mastersverkefnið gengur allt í lagi, ýmis tæknileg vandamál sem hafa hrjáð mig en þetta virðist allt virka núna.

Það er alveg að koma helgi, verður reyndar ekki mikil helgi, mikið sem ég þarf að gera....


kveð í bili

Sunday, March 22, 2009

Afmæli

smá afmælisblogg

Ég er orðinn 25 ára
finnst ég samt ekki vera 25 ára...
en annars er ég bara sáttur við þetta, get ekki verið unglingur endalaust.

Verkefnið gengur allt í lagi, er kominn með fullt af niðurstöðum. Mun setja þær hérna á bloggið :).

ég skal lofa að blogga meira í vikunni, er bara ekki í bloggstuði í dag og ekki undanfarnar vikur heldur

bið að heilsa...

Tuesday, March 3, 2009

bad dreams?

Saturday, February 28, 2009

Who watches the Watchmen?

ég er að bíða eftir mynd núna í bíó sem heitir Watchmen. Mynd er byggð á mjög frægri myndasögu eftir Alan Moore (V for Vendetta og fleiri). Ég keypti myndasöguna síðasta sumar og var alveg agndofa hvað hún náði að snerta mig djúpt. Bókin fjallar lauslega um ofurhetjur í New York. Aðeins ein þeirra hefur samt alvöru ofurkrafta, hinar hetjurnar eru aðeins grímuklæddar og reyna að gera heiminn að betri stað með misgóðum árangri. Ég held að ef ofurhetjur væru til þá væru þær í líkingu við þessar .Ég mæli með þessari bók fyrir alla. Hún er reyndar rosalega dökk og þung í lesningu en skilar miklu til baka.

Ég er svona hæfilega bjartsýnn á myndina, ætla ekki að gera mér of miklar vonir, trailerarnir lofa góðu samt